Isaiah 1

1Vitrun Jesaja Amozsonar, er hann fékk um Júda og Jerúsalem á dögum Ússía, Jótams, Akasar og Hiskía, konunga í Júda. 2Heyrið, þér himnar, og hlusta þú, jörð, því að Drottinn talar: Ég hefi fóstrað börn og fætt þau upp, og þau hafa risið í gegn mér. 3Uxinn þekkir eiganda sinn og asninn jötu húsbónda síns, en Ísrael þekkir ekki, mitt fólk skilur ekki. 4Vei hinni syndugu þjóð, þeim lýð, sem misgjörðum er hlaðinn, afsprengi illræðismannanna, spilltum sonum! Þeir hafa yfirgefið Drottin, smáð Hinn heilaga í Ísrael og snúið baki við honum. 5Hvar ætlið þér að láta ljósta yður framvegis, fyrst þér haldið áfram að þverskallast? Höfuðið er allt í sárum og hjartað allt sjúkt. 6Frá hvirfli til ilja er ekkert heilt, tómar undir, skrámur og nýjar benjar, sem hvorki er kreist úr né um bundið og þær eigi mýktar með olíu. 7Land yðar er auðn, borgir yðar í eldi brenndar, útlendir menn eta upp akurland yðar fyrir augum yðar, slík eyðing sem þá er land kemst í óvina hendur. 8Dóttirin Síon er ein eftir eins og varðskáli í víngarði, eins og vökukofi í melónugarði, eins og umsetin borg. 9Ef Drottinn allsherjar hefði eigi látið oss eftir leifar, mundum vér brátt hafa orðið sem Sódóma, _ líkst Gómorru! 10Heyrið orð Drottins, dómarar í Sódómu! Hlusta þú á kenning Guðs vors, Gómorru-lýður! 11Hvað skulu mér yðar mörgu sláturfórnir? _ segir Drottinn. Ég er orðinn saddur á hrútabrennifórnum og alikálfafeiti, og í uxa-, lamba- og hafrablóð langar mig ekki. 12Þegar þér komið til þess að líta auglit mitt, hver hefir þá beðið yður að traðka forgarða mína? 13Berið eigi lengur fram fánýtar matfórnir; þær eru mér andstyggilegur fórnarreykur! Tunglkomur, hvíldardagar, hátíðastefnur, _ ég fæ eigi þolað að saman fari ranglæti og hátíðaþröng. 14Sál mín hatar tunglkomur yðar og hátíðir, þær eru orðnar mér byrði, ég er þreyttur orðinn að bera þær. 15Er þér fórnið upp höndum, byrgi ég augu mín fyrir yður, og þótt þér biðjið mörgum bænum, þá heyri ég ekki. Hendur yðar eru alblóðugar. 16Þvoið yður, hreinsið yður. Takið illskubreytni yðar í burt frá augum mínum. Látið af að gjöra illt, 17lærið gott að gjöra! Leitið þess, sem rétt er. Hjálpið þeim, sem fyrir ofríki verður. Rekið réttar hins munaðarlausa. Verjið málefni ekkjunnar. 18Komið, eigumst lög við! _ segir Drottinn. Þó að syndir yðar séu sem skarlat, skulu þær verða hvítar sem mjöll. Þó að þær séu rauðar sem purpuri, skulu þær verða sem ull. 19Ef þér eruð auðsveipir og hlýðnir, þá skuluð þér njóta landsins gæða, 20en ef þér færist undan því og þverskallist, þá skuluð þér verða sverði bitnir. Munnur Drottins hefir talað það. 21Hvernig stendur á því, að hún er orðin að skækju _ borgin trúfasta? Hún var full réttinda, og réttlætið hafði þar bólfestu, en nú manndrápsmenn. 22Silfur þitt er orðið að sora, vín þitt vatni blandað. 23Höfðingjar þínir eru uppreistarmenn og leggja lag sitt við þjófa. Allir elska þeir mútu og sækjast ólmir eftir fégjöfum. Þeir reka eigi réttar hins munaðarlausa, og málefni ekkjunnar fær eigi að koma fyrir þá. 24Fyrir því segir hinn alvaldi Drottinn allsherjar, hinn voldugi Ísraels Guð: Vei, ég skal ná rétti mínum gagnvart mótstöðumönnum mínum og hefna mín á óvinum mínum. 25Og ég skal rétta út hönd mína til þín og hreinsa sorann úr þér, eins og með lútösku, og skilja frá allt blýið. 26Ég skal fá þér aftur slíka dómendur sem í öndverðu og aðra eins ráðgjafa og í upphafi. Upp frá því skalt þú kallast bær réttvísinnar, borgin trúfasta. 27Síon skal endurleyst fyrir réttan dóm, og þeir, sem taka sinnaskiptum, munu frelsaðir verða fyrir réttlæti. 28En tortíming kemur yfir alla illræðismenn og syndara, og þeir, sem yfirgefa Drottin, skulu fyrirfarast. 29Þér munuð blygðast yðar fyrir eikurnar, sem þér höfðuð mætur á, og þér munuð skammast yðar fyrir lundana, sem voru yndi yðar. 30Því að þér munuð verða sem eik með visnuðu laufi og eins og vatnslaus lundur. 31Og hinn voldugi skal verða að strýi og verk hans að eldsneista, og hvort tveggja mun uppbrenna hvað með öðru og enginn slökkva.
Copyright information for Icelandic